Farin verður sumarsólstöðuganga í Viðey laugardagskvöldið 21. júní en á sólstöðum er sólargangur lengstur hér á norðurhveli jarðar og hádegissólin hættir að hækka dag frá degi. Hún fer að lækka og dagurinn styttist.
Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafns leiðir gönguna. Heiðursgestur göngunnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur þátttakendum ávarp. Þá mun upphafsmaður göngunnar Þór Jakobsson veðurfræðingur segja nokkur orð.
Farin verður skemmtileg gönguleið um eyjuna og sögur sagðar af staðnum. Gönguleiðin er hæfileg, gengið er á mjúku undirlagi en mælt er með góðum skóm og skjólgóðum jakka. Gestir eru hvattir til að taka með sér nesti og heitan drykk til að njóta á meðan hlýtt er á erindi Ingibjargar áður en gengið verður til baka að ferjunni.
Sumarsólstöðuganga í Reykjavík og nágrenni hefur nú verið stunduð árlega síðan 1985. Gangan hefur verið kölluð "meðmælaganga með lífinu og menningunni" og gestir eru hvattir til að spjalla saman og njóta samvista.
Siglt verður frá Skarfabakka í Viðey kl. 20:00 og til baka ekki seinna en kl. 23:00.
Ókeypis er á viðburðinn, en greiða þarf í ferjuna. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram í ferjuna. https://elding.is/is/node/2373
Verið öll velkomin!
//
Join us for a Summer Solstice Walk on Viðey Island on Saturday evening, June 21. During the solstice, the sun's passage is the longest here in the northern hemisphere, and the midday sun stops rising day by day. The days will become shorter. The spoken language will be Icelandic.
We will walk around the island and hear stories about the place. Guests are encouraged to bring a snack and a hot drink to enjoy while listening to the guide before returning to the ferry.
The trail is easy, with a soft surface, but good shoes and a warm jacket are recommended. The Summer Solstice Walk in and around Reykjavík has been held annually since 1985.
The ferry will leave Skarfabakki at 20:00 and return from Viðey Island no later than 23:00.
The event is free, but you must pay for the ferry ride. We recommend buying a ticket before going on the ferry. https://elding.is/is/node/2373
Everyone is welcome!