November 27, 2025 19:30

Námskeið með Söndrugarði

Date
November 27, 2025 19:30
Location
Textíl Barinn, Faxafen 10 , 108 Reykjavík, Iceland
Duration
3 hours
Language Icelandic
Price
12900 ISK per person

This event is by Textíl Barinn

Á þessu námskeiði verða skoðaðar skapandi, sýnilegar aðferðir til að gera við flíkur, á ensku kallað visible mending. Þú getur komið með flík sem þú vilt nýta námskeiðið í til að gera við, eða þú getur nýtt námskeiðið til að gera við prufubúta ef þú vilt æfa þig áður en þú stekkur í fataviðgerð.

Það er mikil fegurð í því að gefa sér tíma til að nostra við að hlúa að flík til að gefa henni lengra líf, bæði til að skapa fleiri minningar í henni og einnig til að sporna við textílsóun.

Sandra Karls kennir námskeiðið en hún er tómstundafræðingur og ljósmyndari sem hefur undanfarin ár valið að hægja á — að sauma eða prjóna sjálf og viðhalda frekar en að kaupa nýtt. Þessi breyting á neyslu hefur haft í för mer sér aukinni virðingu fyrir efni, tíma og sögunum sem búa í hverri flík.

Námskeiðið er haldið á Textíl Barnum, Faxafen 10 , Faxatorg 2. hæð, 108 Reykjavík

Fimmtudagur 27. nóvember

Klukkan 19:30-22:00

Verð: 12.900 kr

Skráning á heimsíðu https://www.textilbarinn.is/nmskei

Til að staðfesta skráningu þarf að greiða fyrir námskeiðið.

Totel.ly is partially funded by Rannis Technology Development Fund and Erasmus+.

Rannis Technology Development Fund Erasmus+

© 2024, Totel.ly. - All rights reserved. Súlunes 33b, 210 Garðabær - Iceland | kt. 621222-1200
Powered by: Neurotic.