November 29, 2025 14:00

make-a-thek x Fríbúðin / Textílbar, þjónaveisla og garnsöfnun

Date
November 29, 2025 14:00
Location
Borgarbókasafnið í Gerðubergi
Duration
2 hours
Language English
Price
Free

This event is co-hosted by Borgarbókasafnið and Textíl Barinn

Borgarbókasafnið í Gerðubergi og Fríbúðin í Gerðubergi eru að safna garni og bjóða svo í partý!

Í tilefni Evrópsku nýtnivikunnar, sem haldin verður dagana 22.–30. nóvember, kallar Borgarbókasafnið Gerðubergi eftir öllum löngu gleymdu garnafgöngunum, hálfkláruðu garnverkefnunum, gömlum prjónaflíkum og öllu því sem tengist handavinnu en vantar nýtt heimili.

Hægt verður að koma með efni á bæði bókasafnið og í Fríbúðina í Gerðubergi.

Í lok vikunnar verður svo sannkallaðri prjónaveislu slegið upp á bókasafninu, þar sem gestir geta gripið í gómsæta garnhnykla og fundið nýjar, skapandi leiðir til að tengja saman alla þræðina í skemmtilegum verkefnum.

Besti barinn í bænum, Textílbarinn, heimsækir okkur og segir frá sinni starfsemi og verður með ýmislegt spennandi á boðstólunum sem hægt er að njóta á aðventunni.

Nýjustu handavinnubækurnar verða til sýnis og heitt kaffi á könnunni fyrir þau sem vilja njóta notalegrar stundar í góðum félagsskap.

Við tökum fagnandi á móti ykkur!

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist Make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

Frekari upplýsingar veitir: Ilmur Dögg Gísladóttir, ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is

Totel.ly is partially funded by Rannis Technology Development Fund and Erasmus+.

Rannis Technology Development Fund Erasmus+

© 2024, Totel.ly. - All rights reserved. Súlunes 33b, 210 Garðabær - Iceland | kt. 621222-1200
Powered by: Neurotic.